Gjaldþrota þjóð? Nei, nei.

  1. Við vitum ekki enn hver skuldastaða þjóðarinnar er. 
  2. Sama hvað á gengur. Við skulum standa við allar okkar skuldbindingar á alþjóða vettvangi, verðum eflaust að fá til þess stór lán, ef þau á annað borð eru fáanleg. 
  3. Þurfum örugglega að taka upp annan (og heilbrigðari) lífsstíl til að standa við okkar skuldbindingar. 
  4. Við þurfum að hreinsa til eins fljótt og kostur er til að senda óreiðuna ekki til næstu kynslóða.
  5. Förum ekki út í einhverja vitleysu í paník. -Við skulum ekki selja burt verðmæti landsins.
  6. Útrásarmennina heim: Komið með 80% af eigum ykkar og leggið í þjóðarbúið. Hitt megið þið eiga og geyma á Cyman eyjum eða hvar sem er, í skútum, þyrlum eða 100 herbergja íbúðum.
  7. Stjórnmálamenn: Lendið mjúkri lendingu og afnemið STRAX eftirlaunalögin (Þau voru ykkar útrás). 
  8. Göngum í Evrópusambandið. (Kem ekki auga á önnur nothæf sambönd, nema kanske breska heimsveldið, eða þannig). Málið er einfalt: Við getum ekki verið ein að róa á smá bátskel úti í hafsauga. Það hefur berlega komið í ljós síðustu vikur. 
  9. Verum glöð og bjartsýn. Lífið er frábær gjöf. Það eru forréttingi að vera Íslendingur - glötum þeim ekki.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Sjálfstæðið er það dýrmætasta sem við eigum og er ekki til sölu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 19.10.2008 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband