Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
4.1.2009 | 22:44
Svarið strax!
Hvers vegna gerist ekkert eða heyrist frá stjórnvöldum um málshöfðun?
Mér dettur ekkert annað í hug en verið sé að leyna þjóðina því hvers vegna hryðjuverkalögin voru sett á okkur.
Stjórnvöld þykjast ekkert vita. Hafa þau ekki spurt Breta? Hvað er eiginlega með ykkur, landsfeður og mæður?
Líklega er málið sáraeinfalt: Stjórnvöld vita upp á sig sökina en ætla að reyna að þegja málið í hel.
Er þetta svo?
Fresturinn að renna út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2009 | 14:08
Frábært framtak
Morgunblaðið er með umfjöllun um Evrópusambandið í dag.
Blaðið ætlar að fjalla um ESB næstu daga, kosti og galla hugsanlegrar aðildar Íslands o.fl. Umfjöllunin verður birt á vefnum og fólki gefst kostur á að taka þátt í umræðunni á vefsvæðinu ESB og Ísland.
Sagan er rakin í stuttu máli í þessari fyrstu umfjöllun, stiklað á stóru um aðdraganda og sögu ESB.
Vonandi tekst blaðamönnum Moggans að fjalla um þetta mikilvæga og viðkvæma mál á hlutlausan hátt.
Aðild eða ekki aðild að ESB er ekki af-því-bara spurning, heldur ein þeirra stóru spurninga sem þjóðin stendur frammi fyrir við mótun og uppbyggingu Nýja Íslands.
Takk fyrir frábært framtak!
Fréttaskýringar um ESB 4.-15. janúar: Kostir og gallar aðildar að ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.1.2009 kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.1.2009 | 12:09
Ég mun sakna hans
Mjög leitt að Glugginn þurfi að gefast upp.
Hann var gott blað sem ég mun sakna.
Hætt er við að fleiri fjölmiðlar muni leggja upp laupana á þessum samdráttartímum. Það er hinsvegar það sem við þurfum síst af öllu á að halda nú, þegar þjóðfélagið er rústir einar og lífsnauðsyn að byggja það upp á nýjum grunni -og hreinsa upp allan óhroðann sem hefur fengið að grassera óáreittur.
Vonandi tekst að lífga Gluggan við, þótt síðar verði.
Útgáfu Gluggans hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.1.2009 | 16:21
Hann var bara fínn!
Ólafur Ragnar var með flotta áramótaræðu.
Viðurkenni alveg að ég ætlaði að slökkva á útvarpinu þegar hann byrjaði, nennti ekki að standa upp en hlustaði á forsetann.
Hann viðurkenndi mistök sín í tengslum við útrásarmálin. Það er meira en flestir forystumenn okkar hafa verið menn til.
Ég datt inn á áramótaboðskap dönsku drottningarinnar í gærkveldi, heyrði smá glefsur í danska sjónvarpinu. Á eftir því var langt samtal þriggja danskra fréttamanna sem greindu allt sem drottningin sagði eða sagði ekki. Allt rætt af mikilli lotningu og virðingu fyrir det danske kongehus, þótt þau norpuðu skálfandi af kulda fyrir utan konungshöllina.
Ég fór ósjálfrátt að bera það saman við okkar afstöðu til forsetans og forsetaembættisins.
-Eigum við sameingingartákn?
Þjóðarátak nýrrar sóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2008 | 13:50
Hverjir kaupa?
Ég er áskrifandi að Morgunblaðinu og hef verið lengi. Finnst hann hafa skánað undanfarna mánuði, þótt enn vanti mikið á öfluga rannsóknablaðamennsku.
Nú er spurningin: Hverjum verður hann háður? Fjárfestum sínum eða þjóðinni?
Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að hafa öflugt og óháð dagblað.
Það fer alfarið eftir því hvernig til tekst með blaðið á næstu vikum hvort ég verð áfram áskrifandi.
Viðræður um sölu á Árvakri að hefjast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2008 | 13:33
Skiptir traust máli?
Skiptir traust á íslensku bönkunum máli? Ekki virðast forystumenn okkar í stjórnmálum og fjármálastofnunum hafa gert sér grein fyrir því.
Stór hópur manna, sem voru í lykilstöðum hjá gömlu bönkunum, voru ráðnir í stjórnunarstöður nýju ríkisbankanna.
GETUR það skapað traust á bankastofnunum okkar innanlands?
GETUR það skapað traust á bankastofnunum okkar erlendis?
Allir þeir gerningar eru aðeins til þess fallnir að ala á úlfúð og vantrausti.
Það eru vinsamleg tilmæli mín og líklega megin hluta þjóðarinnar (þótt ég sé ekki þjóðin) að nú verði tekið til hendinni:
Áfram hreinsað til í Kaupþingi
Hreinsað til í Landsbankanum
Hreinsað til í Glitni
Hreinsað til í Fjármálaeftirlitinu
Hreinsað til í Seðalabankanum
Þetta eru aðeins nokkur dæmi. Það verður aldrei friður í þjóðfélaginu ef þetta er ekki gert.
Tveimur sagt upp til viðbótar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 20:01
Upp með hendur
Engar ólögmætar færslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.12.2008 | 23:31
Er búið að fella niður skuldir æðstu stjórnenda Kaupþings?
Ef þetta er satt, hvað féll gengið mikið við þennan gjörning?
-Hve miklu stærra verður gjaldþrot gamla Kaupþings, vegna þessa gjörnings?
-Hvað hækkuðu erlendu lánin okkar mikið við þetta?
-Hvað hækkaði vísitalan við þetta?
Ætlar nýja Kaupþing að fella niður skuldir þeirra starfsmanna sem fengu lán til hlutabréfakaupa í bankanum?
-Ef svo er, hvað hækkar vísitalan við þann gjörning?
Ég þarf að vita þetta, því það lendir á mér, okkur öllum, börnum og barnabörnum að borga.
En ætlum við að gera það?
Rannsaka millifærslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2008 | 09:45
Ertu ekki blankur eins og aðrir?
Gísli Marteinn tekur sér launalaust leyfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.12.2008 | 07:31
Öll eftirlitskerfi brugðust
Það verður ljósara með hverjum deginum sem líður að eftirlits- og öryggiskerfi okkar brugðust. Og það sem verra er, þau reyna að ástunda óbreytt vinnubrögðum.
Þetta hafa stjórnendur fyrirtækja notað sér í stórum stíl. Bankarnir kanske stórtækastir. Þó eru áhöld um hvort FL (Stoðir), Eimskip og mörg önnur eigi ekki heima í þessum hópi útvaldra.
Lýgin, sem allir átu hver eftir öðrum, var orðin svo stór, að við vorum farin að trúa, að við værum ein ríkasta þjóð í heimi, gáfaðri og flinkari en allir aðrir.
Hvað var viðskiptavild allra íslenskra fyrirtækja mikil 1.1.2008, þegar tuttugu fyrirtækjasamstæður í kauphöllinni töldu fram 931 milljarð kr.?
Hvað er hægt að kaupa af mat og fatnaði fyrir viðskiptavild? Hana á auðvitað að banna í bókhaldi, því hún er ekki neitt.
Það á líka að banna að skrá hlutafé í bókhaldi á öðru en nafnvirði.
Fyrirtæki þrifust á blekkingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |