Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
13.1.2009 | 07:38
Er eitthvað eftir
Margir eigendur veiðiheimilda voru umsvifamikilir á hlutabréfamarkaði, segir fréttin.
Margir peningamenn keyptu upp bújarðir út um allt land.
Nú má spyrja: Hverjir eiga Ísland í dag? Kanske ekki Íslendingar?
Sjávarútvegsfyrirtæki berjast fyrir lífi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2009 | 22:00
Björn er humoristi
Lengi skal mannin reyna. Ég sem hélt að Björn væri húmorslaus.
Sjálfstæðisflokkurinn á stóran þátt í að gera Ísland gjaldþrota eins og nú hefur gerst. Er það sögulegt hlutverk Sjálfstæðisflokksins?
Ég legg til að nafni flokksins verði breytt á landsfundinum með forskeytinu Ó.
Brygðist sögulegu hlutverki sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2009 | 14:32
Silfur Egils gott
Engin má missa af Silfri Egils í dag. Frábær þáttur hjá drengnum.
Ég hjó eftir því að enginn stjórnmálamaður var í þættinum? Er Egill að loka á ráðamenn þjóðarinnar?
Vilhjálmur: Ekki rétt að kenna bönkunum um allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.1.2009 | 12:04
„Ó þjóð, mín þjóð, hvar ertu?“
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2009 | 00:03
Bullandi bísniss
12. nóv. s.l. varð Árdegi gjaldþrota. Það átti m.a. raftækjaverslunarkeðjuna Merlin í Danmörku, sem var yfirtekin af Eldbodan.
Árdegi átti líka BT. Hagar keyptu ræfilinn. Mbl.is segir í fréttinni: Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV hafði Tryggvi milligöngu um að Hagar kæmu með tilboð í þrotabú BT.
-Hvað lagði Landsbankinn fram í þetta púkk?
Sena, dótturfyrirtæki 365 keypti Skífuna. Í frétt Mbl. segir: Landsbankinn fjármagnaði kaupin fyrir 365.
Tvö dótturfélög Árdegis, fataverslanirnar NOA NOA og NEXT urðu gjaldþrota. Þá er frétt á mbl.is 9.12. s.l.:
Hjónin Sverrir Berg Steinarsson og Ragnhildur Anna Jónsdóttir eru aftur orðin eigendur að verslununum Next og Noa Noa í Kringlunni. Þau keyptu tæplega helminginn af Arev N1, en Arev N1 keypti verslanirnar út úr þrotabúinu Nordex ehf. sem var í eigu Árdegis, sem Sverrir og Ragnhildur áttu.
Hver veitti þeim fjarhagslega fyrirgreiðslu??
Tryggvi hafði bein afskipti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2009 | 15:58
Geir. Lögfræðiálitin, takk!
Geir.
Það er nauðsynlegt að kynna þjóðinni ítarlega þessi lögfræðiálit, til að eyða tortryggni (heyra varla undir bankaleynd eða persónuverndarlög).
Verður það ekki örugglega gert í dag eða á morgun?
Vonlaust dómsmál gegn Bretum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2009 | 12:39
Til hvers eru upplýsingafulltrúar???
Þessi frétt er upplýsandi. Þar er skýrt út hvað ríkisstjórnin hefur aðhafst í þessu máli og hver niðurstaða hennar er.
Undanfarna daga hefur margt verið sagt í fjölmiðlum og margir stóryrtir í bloggheimum um aðgerðarleysi stjórnvalda: -Það heyrðist ekki múkk frá þeim.
Það sem ríkisstjórnin átti að gera, var að láta okkur vita að málið væri í vinnslu og að ákvörðun um málshöfðun yrði tekin fyrir tilskilinn frest.
-Til hvers eru upplýsingafulltrúar???
Leita til mannréttindadómstóls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2009 | 09:37
Á Iceland Express mikinn pening?
Við höfum fulla trú á fyrirtækinu og komum til með að setja mikinn pening inn í rekstur þessara félaga þannig að framtíð þeirra á að vera sterk,
Þetta er haft eftir Matthíasi í þessari frétt.
Gott að vita að einhver fyrirtæki eigi mikinn pening á Íslandi í dag.
Iceland Express kaupir Ferðaskrifstofu Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2009 | 01:31
Hvar eru fjölmiðlar?
Það er með ólíkindum að fjölmiðlar hafi ekki náð í fréttir af málinu.
Hvers vegna þegir ríkisstjórnin þunnu hljóði? (Við vitum að málið er viðkvæmt og bla, bla.)
Eru fjölmiðlarnir okkar svona handónýtir?
Þegja þeir með ríkisstjórninni?
5.1.2009 | 01:21
Hvar eru fjölmiðlar?
Það er með ólíkindum að fjölmiðlar hafi ekki náð í fréttir af málinu.
Hvers vegna þegir ríkisstjórnin þunnu hljóði? (Við vitum að málið er viðkvæmt og bla, bla.)
Eru fjölmiðlarnir okkar svona handónýtir?
Þegja þeir með ríkisstjórninni?