Saklaust og óspillt þjóðfélag?

Hvernig hafa erlendar matsstofnanir komist að því að íslenskt þjóðfélag væri eitt það óspilltasta í víðri verlöld?

Hverjir ætli hafi séð um að koma þeim skilaboðum á framfæri? 

Nú fljóta spillingarmálin upp hvert á fætur öðru í okkar drullupolli. Er þetta bara toppurinn á ísjakanum?

Kreppan leikur marga grátt, líka þá spilltu. Ég el þá von í brjósti að hún verði til þess að losa okkur við spillinguna og þá spilltu þannig að það verði þess virði að búa á Íslandi.

Hverjir af æðstu mönnum Sjálfstæðisflokksins vissu af 55 millj. kr. framlögunum?

-Við verðum að fá að vita það. 

Hverjir af æðstu mönnum Sjálfstæðisflokksins vissu ekki af 55 millj. kr. framlögunum?

-Við verðum líka að fá að vita það. Af hverju? Er hægt að treysta dómgreind þeirra? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Félagi !

 Hverjir af æðstu mönnum Samfylkingarinnar vissu af 48 milljon króna framlagi ?

 Við verður að fá að vita það !

 Hverjir af æðstu mönnum Samfylkingarinnar vissu af 13 millj, kr. framlagi frá BAUGI ?

 Við verðum að fá að vita það !

 Hverjir af framámönnum Samfylkingarinnar vissu af " privat" frá ACTAVÍS Kr. 3.millj..

 Það verðum við líka að fá að vita !

 Enn - af því að nú eru páskar, má minna á orð Meistarans mikla, er hann sagði.: " Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum" !!

 Gleðilega páska !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband